Microsoft Solitaire Collection
Game Pass

Microsoft Solitaire Collection

Xbox Game StudiosSpil og borðspilSígildir leikirÞrautir og fróðleikur
Fyrir 3 ára og eldri
PEGI 3

In-Game Purchases

+Offers in-app purchases.

Description

Við fögnum yfir 30 árum af fjöri - spilaðu mest spilaða tölvuleik ALLRA TÍMA ásamt milljónum annarra spilara! Uppgötvaðu BESTU kapalleikina í einu appi - Klondike Solitaire, Spider Solitaire, FreeCell Solitaire, TriPeaks Solitaire og Pyramid Solitaire! Einfaldar reglur og auðveld spilun gera Microsoft Solitaire Collection að frábærri skemmtun fyrir alla frá 8 til 108 ára. Slappaðu af með klassísku leikjunum, njóttu þess að halda huganum skörpum eða leitaðu upp áskoranir með eiginleikum eins og söfnum, daglegum þrautum, viðburðum og verðlaunum. Sýndu hæfni þína í Solitaire með því að vinna allt að 75 afrek og ná þannig hærri spilaraeinkunn. Þú stjórnar ferðinni, því það eru svo margir valkostir í boði! Klondike Solitaire: • Klondike Solitaire er konungur allra tímalausra og sígildra spilaleikja • Hreinsaðu öll spilin af borðinu með því að draga eitt eða þrjú spil • Spilaðu með hefðbundinni eða Vegas-stigagjöf Spider Solitaire: • Átta (8) spilaraðir bíða þín í Spider Solitaire • Hreinsaðu allar raðirnar í eins fáum umferðum og hægt er • Spilaðu einn lit eða ögraðu þér með því að spila alla fjóra (4) litina FreeCell Solitaire: • Sá kapall sem krefst mestrar hugsunar • Notaðu fjögur laus pláss til að færa til spil svo þú getir hreinsað öll spilin af borðinu • FreeCell Solitaire verðlaunar spilara sem hugsa nokkra leiki fram í tímann TriPeaks Solitaire • Veldu spil í röð, fáðu stig fyrir samsetningar og reyndu að hreinsa borðið í TriPeaks Solitaire • SKEMMTILEG útgáfa af vinsælasta kapli í heimi • Kapallinn sem hentar best þegar þú vilt slaka á Pyramid Solitaire: • Paraðu tvö spil sem samanlagt eru 13 til að fjarlægja þau af borðinu í Pyramid Solitaire • Reyndu að ná toppi pýramídans og hreinsa eins mörg kapalborð og þú getur • Nýjasta viðbótin við sígildu spilaleikina Daglegar þrautir og viðburðir: Spreyttu þig á nýjum spilaþrautum sem ganga upp í öllum fimm (5) leikjastillingunum á mismunandi erfiðleikastigum á hverjum degi! Kláraðu daglegar þrautir til að vinna þér inn Solitaire-verðlaunaskildi og verðlaun! Misstirðu af einhverjum þrautum eða viltu reyna aftur við þær sem þú hefur þegar tekið þátt í? Skráðu þig inn með Microsoft-reikningi til að halda verðlaununum þínum, fylgjast með framganginum og jafnvel keppa við aðra spilara. Þemu og bakhliðar spilanna Microsoft Solitaire Collection býður upp á nokkur mismunandi þemu, svo þú getur valið útlit spilanna í takt við skapið þitt hverju sinni. Þú getur t.d. valið einfaldleikann með sígilda þemanu, notið kyrrðarinnar með fiskabúrsþemanu, slakað á með strandþemanu, kosið fágað útlit dimma þemans eða jafnvel ferðast aftur í tímann með þemanu sem var notað á tíunda áratug síðustu aldar. Það er úr nægu að velja - hvert verður þitt uppáhald? Vistaðu framganginn: Skráðu þig inn með Microsoft-reikningi til að vista spilatölfræðina þína, XP og getuþrep, vinna afrek og taka þátt í viðburðum. Skráðu þig inn á mörgum tækjum með sama Microsoft-reikningi til að halda áfram þar sem frá var horfið og spila áfram uppáhalds Solitaire-spilaleikina hvert sem þú ferð. Tengdu Xbox Game Pass-reikning til að fá aðgang að auglýsingalausri upplifun! Haltu upp á meira en 30 ára sögu BESTU Solitaire-kapalleikjanna hér í Microsoft Solitaire Collection!

Published by

Xbox Game Studios

Release date

7/28/2012

Playable on

  • PC
  • Hub

Capabilities

  • HDR10
  • Einn spilari
  • Árangur á Xbox
  • Xbox viðvera
  • Xbox vistað á skýi

Included in these subscriptions

  1. PC Game Pass

    ISK 1,350/month after that
    • Hundreds of high-quality games on PC
    • New games on day one
    • Member deals and discounts
    • EA PlayEA Play membership